Pressan sem slík eða?

Pressan gekk of langt? Pressunni urðu á stór mistök? Pressan hefur dregið lærdóm af þessu máli?

Kjánalega og klúðurslega orðað svo ekki sé meira sagt. Hefði verið trúverðugara að tala um blaðamann/blaðamenn blaðsins en ekki Pressuna sem sjálstætt þenkjandi ferlíki.


mbl.is „Pressan gekk of langt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Líkar þetta" hnappurinn á ekki við hér, Moggafólk!!

Hvað er málið með "Líkar þetta" fítusinn?  Er ekki spurning um að fjölmiðlar fari að átta sig á hvenær það er við hæfi að bjóða upp á þennan möguleika?

Það ætti að nægja að geta deilt fréttinni, því ekki get ég mögulega séð hvernig nokkrum einasta heilvita manni getur líkað við þessa frétt.

Ósmekklegt svo ekki sé meira sagt.


mbl.is Vandlega undirbúin hryðjuverk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með allri virðingu ....

.... þá virka þessar afsökunarbeiðnir og syndajátningar, sem koma einu og hálfu ári eftir að glæpurinn komst upp, ekki á mig.  Og nú er ég að tala yfir heildina, ekki bara hvað Ingibjörgu Sólrúnu varðar.

Þetta virkar á mig eins og barnið sem grætur fögrum tárum og lofar bót og betrun eftir að upp komst að það stal frá kaupmanninum á horninu.  Tárin renna þó ekki af samviskubiti yfir verknaðinum sjálfum, heldur yfir því að hafa verið nappað og ávítt.

 


mbl.is „Mér finnst ég hafa brugðist“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hraðfrétt?

Sá/sú sem skrifaði þessa frétt hefur aldeilis verið að flýta sér eða er hreinlega ekki vandvirkari en raun ber vitni. Stafsetningarvillur, málfarsvillur og innsláttarvillur út um allt.

Hvar er metnaðurinn? Pirri pirr!!


mbl.is Susan Boyle vill finna ástina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jeii jeii jibbí jeii!!

Við unnum Dani, við unnum Dani, við unnum Dani!!! Ligga ligga lái! Hí á Dani ... ligga lái! Blí og bla og hahaha ... Danir töpuðu! Nananana búbú!!

Já, ég verð fertug á árinu.  Og hvað með það? 


I seeeeee

Ágætt að fá þetta sett upp svona svart á hvítu.  Þá getur maður einbeitt sé að því að stressa sig líka yfir leik Austurríkismanna og Serba og telja mörkin hjá þeim eins og enginn sé morgundagurinn.

Ég held ég fái mér bara einn bjór.


mbl.is Hvernig er staðan á EM?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viljið þið minna mig á ...

... hvað ég er að gera hérna.  Afhverju er maður ekki farinn af landi brott?

Því miður fer þjóðerniskenndin dvínandi eftir því sem greiðslubyrði lánanna hækkar og það verður erfiðara að ná endum saman.  Sá peningur sem við áttum í fasteigninni okkar er horfinn fyrir fullt og allt og vel það. Hviss, bang, búmm.

Nei, takk.  Maður lætur ekki bjóða sér þetta mikið lengur.  Ég er þakklát fyrir náttúruna, hreina loftið og ferska vatnið, ekki misskilja mig, og þar til fyrir stuttu fannst mér best í heimi að vera Íslendingur og búa á Íslandi.

Mér finnst það bara ekki lengur og það kaldhæðnislega er að ég skammast mín fyrir að líða þannig.  Ég á hinsvegar ekkert að skammast mín ... það eru aðrir sem eiga að gera það, en þeir kunna það ekki.


mbl.is Skuldugasta þjóð á byggðu bóli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólakveðja

Óska landsmönnum öllum, stuttum sem háum, feitum sem mjóum, ungum sem gömlum, krullhærðum sem og sköllóttum, rangeygum og tileygum, liðugum og stirðum, ríkum og fátækum ... *næ andanum* ... glöðum jafnt sem döprum, heppnum og óheppnum, húmoristum og þeim sem aldrei stekkur bros, aurapúkum sem og gjafmildum ... ok ok ... þið vitið hvað ég á við... gleðilegra jóla og hamingju á nýju ári.

Blessun ykkur öllum til handa!


Landið mitt

Ég verð sorgmædd þegar ég sé hvernig að komið er fyrir landinu mínu. Vissulega hefur alltaf verið til fólk sem þarf á aðstoð að halda fyrir jólin, en að sá fjöldi sé meiri en áður er sorglegt. 

Öllum þeim sem eiga um sárt að binda óska ég alls hins besta og vona að sú aðstoð sem býðst geri ykkur jólahátíðina bærilegri.


mbl.is Margir biðja um hjálp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Rannveig Guðmundsdóttir

Höfundur

Rannveig Guðmundsdóttir
Rannveig Guðmundsdóttir

Eiginkona, móðir, stjúpmóðir, dóttir, vinkona og Meyja.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 2635

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband